Vefjagigtarnámskeið

Fræðsla fyrir vefjagigtargreinda og aðra sem glíma við langvinna verki  11.febrúar – 1.apríl  2025

Fyrirlestrarnir fara fram gegnum ZOOM fjarfundabúnað.  
Hver fyrirlestur verður aðgengilegur í a.m.k. 4 vikur.

Fræðsla er lykilatriði til að skilja og ná árangri og stjórn í baráttunni við vefjagigt og langvinna verki.  Með hjálp viðeigandi fagaðila, opnum huga og sjálfsbjargarviðleitni getur þú náð að bæta líðan þína og heilsu til frambúðar. 

Dagskrá:

1)  Vefjagigt og langvinnir verkir – flókinn vítahringur 

Þriðjudagur 11.febrúar  19.30 – 21.30

Á þessum fyrirlestri er farið vítt og breitt yfir flókið vandamál.  Vefjagigt  er skoðuð í víðu samhengi  bæði með tilliti til orsakaþátta, einkenna og meðferðar.  Eydís Valgarðsdóttir sjúkraþjálfari

2)  Lyfjameðferð fyrir fólk með vefjagigt og langvinna verki.

Þriðjudagur 18.febrúar  kl. 19.30 – 21.30

Valur Helgi Kristinsson heilsugæslulæknir fjallar um algengustu lyf sem notuð eru í vefjagigtinni.  Virkni þeirra, kosti, galla og aukaverkanir. 

3) Taugakerfið, hugurinn og langvinnir verkir.   Svefn og svefnbætandi ráð

Þriðjudagur 25.febrúar kl. 19.30 – 21.30

Eydís Valgarðsdóttir sjúkraþjálfari fjallar um langvinna verki og flókið samspil margra þátta sem ráða því að verkir verða langvinnir.  Hvernig getum við tekist á við það?  Eftir hlé verður fjallað um svefn og svefnbætandi ráð önnur en lyfjameðferð og hugræna atferlismeðferð.  

4)  Langvarandi streita og kvíði.  Virknistilling – að læra og virða ný mörk.  

Þriðjudagur 4.mars  kl. 19.30 – 21.30

Valdís Eyja Pálsdóttir sálfræðingur cand. psych útskýrir á mannamáli streituviðbragðið og hvernig hugurinn getur bæði verið hjálplegur og fjandsamlegur þegar tekist er á við streitu.  Hún kemur einnig inná hvernig hugræn atferlismeðferð getur hjálpað í baráttunni við vefjagigtina.  Í seinni hluta fyrirlestrarins fjallar Valdís Eyja um virknistillingu (pacing) og mikilvægi þess að þekkja sín mörk til að spara dýrmæta orku og koma í veg fyrir að ofgera sér („krassa“). 

5) Sjálfsmeðferð og sjálfsrækt.   Hreyfing og þjálfun.

Þriðjudagur 11.mars  kl. 19.30 – 21.30

 Eydís Valgarðsdóttir  fjallar um og gefur hugmyndir að ýmsum góðum ráðum sem lina og fyrirbyggja verki og hjálpa okkur að líða betur í eigin skinni.  Í seinni fyrirlestri dagsins fjallar Þóra Guðný Baldurs-dóttir sjúkraþjálfari vítt og breytt um hreyfingu og þjálfun og með hvaða hugarfari farið er af stað. 

6) Þarmarnir og hin mikilvæga þarmaflóra. Grunnur að góðri heilsu? Getum við hjálpað okkur sjálf með breyttu mataræði? 

Þriðjudagur 18 mars kl. 19.30 – 21.30

Vísindin hafa sýnt fram á að fólk með vefjagigt hefur öðruvísi þarmaflóru en aðrir.  Skipta matarvenjur og það sem þú velur að setja á diskinn þinn máli?  Getur verið að þú þolir mat misvel og að sumt sem þú borðar sé hreinlega að valda þér einkennum?  Tíðni sjálfsofnæmissjúkdóma hefur stóraukist í hinum vestræna heimi og fylgja þeir oft vefjagigtinni.  Getum við haft áhrif með breyttum lífsstíl og hvar er hjálp að fá?  Eydís Valgarðsdóttir sjúkraþjálfari 

7) Orkustjórnun og jafnvægi í daglegu lífi.  

Þriðjudagur 25.mars kl. 19.30 – 21.30

Helga Sif Pétursdóttir iðjuþjálfi fer yfir skynfærin 8 og hvernig við getum notað þau til að stilla taugkerfið okkar af og er jafnframt mikilvægur hlekkur í orkustjórnun.  Í seinni hluta fyrirlestrarins fjallar Helga um jafnvægi og orku í daglegu lífi og nauðsyn þess að stunda iðju sem er okkur mikilvæg.

8)  Niðurlag – Reynslusaga

Þriðjudagur 1.apríl kl. 19.30 – 21.30

Sigrún Björg Aradóttir greindist með vefjagigt fyrir mörgum árum.  Hún segir okkur frá vegferðinni og hvernig hún hefur náð að byggja sig upp og ná bata með sjálfsvinnu og breyttu hugarfari.   Hverjar voru helstu hindranirnar og hverjir voru sætustu sigrarnir?

 

Skráning hjá: Eydís Valgarðsdóttur sjúkraþjálfara
Sjúkraþjálfun Akureyrar 
eydis@sjukak.is GSM  869 9228

Verð 30.000,- kr.   Fyrsti fyrirlesturinn er opinn öllum sem áhuga hafa.

Eydís

Tölvupóstur: eydis@sjukak.is
Sími: 8699228

Þóra

Tölvupóstur: thora@sjukak.is
Sími: 8614720

Kristín

Tölvupóstur: kristin@sjukak.is Sími: 6900072

Olga

Tölvupóstur: olga@sjukak.isSími: 6631170

Þuríður

Tölvupóstur: stigurehf@internet.is