Eydís
Hver er ég?
Ég er Eydís Valgarðsdóttir fædd og uppalin á Akureyri starfandi sjúkraþjálfari frá árinu 1993. Gift Clark McCormick og eigum við þrjú börn þau Sigrúnu, Bryndísi og Alexander. Mitt áhugasvið og sérhæfing innan sjúkraþjálfunar er skoðun, mat og meðferð fyrir fólk með stoðkerfisvandamál einkum fólk sem greinst hefur með vefjagigt.
Menntun
1996-2000 University of St. Augustine, Florida. Manual Therapy certfication, MTc.
1989-1993 Háskóli Íslands – BSc próf í sjúkraþjálfun. Lokaverkefni: Helftarlömun
1988-1989 Háskóli Íslands. Hjúkrunarfræði, 30 einingar.
Hef sótt fjölda ráðstefna og námskeiða hérlendis og erlendis einkum varðandi vefjagigt og stoðkerfisvandamál og einnig hjarta-og lungnasjúkdóma. Lærði Tai Chi fyrir fólk með gigt 2012 og framhaldsnámskeið 2014 og hef kennsluréttindi frá stofnun Dr.Paul Lam. Hóf nám í Myofascial Release hjá John F. Barnes PhT í Bandaríkjunum árið 2015.
Starfsferill
2015- Sjúkraþjálfun Akureyrar ehf Akureyri Stofnandi og eigandi fyrirtækisins ásamt fleirum
2013-2015 Stígur, endurhæfing ehf Akureyri
2001-2012 Efling sjúkraþjálfun ehf Akureyri
1994- Hópþjálfun fyrir fólk með vefjagigt
1993-2011 Endurhæfingarstöð hjarta-og lungnasjúklinga Akureyri. Yfirsjúkraþjálfari stöðvarinnar frá 1995-2012
1993-2000 Bjarg sjúkraþjálfun Akureyri
1993- Hef haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða um vefjagigt og leiðir til betri heilsu fyrir fólk með vefjagigt og aðstandendur.
Félagsstörf
Ritnefnd Félagsmiðils, tímarits Félags íslenskra sjúkraþjálfara 2007-2008
Norðurlandsdeild félags sjúkraþjálfara 2005-2007