Hóptímar og fræðsla
Sjúkraþjálfun Akureyrar býður upp á fjölbreytta hóptíma og reglulega fræðslu varðandi vefjagigt og langvinna verki. Stundataflan uppfærist á hverri önn eftir aðsókn og eftirspurn hverju sinni en skráning í tímana fer fram í gegnum facebook hópana:
Leikfimi hjá Sjúkraþjálfun Akureyrar
Hreyfiflæði og líkamsvitund í Sjúkraþjálfun Akureyrar
Sundleikfimi á beiðni hjá Eydísi
ME-hópur í Sjúkraþjálfun Akureyrar
Ef þú ert ekki í sjúkraþjálfun hjá okkur eða ert á biðlistanum, er mögulega pláss í hópþjálfun fyrir þig. En fyrst þarf sjúkraþjálfari að leiðbeina þér hvaða hópur gæti verið sá rétti fyrir þig. Þú þarft að vera með gildandi beiðni í sjúkraþjálfun til að nýta þér niðurgreiðslur SÍ.
Hægt er að senda tölvupóst á viðeigandi umsjónarþjálfara til að skrá sig í hópþjálfun eða fá frekari upplýsingar. En fyrst og fremst ráðleggjum við að ráðfara sig við sinn sjúkraþjálfara.
Hóptímar í Sjúkraþjálfun Akureyrar vorönn 2025
Hóptímasalurinn er inn af stofunni okkar í Sunnuhlíð 12, 0. hæð. Salurinn er á vinstri hönd þegar gengið inn í gegnum forstofu.
Í boði er að nota læsta skápa á gangi inn af hóptímasal til að geyma yfirhafnir og/eða fylgihluti ásamt sturtu/búningsklefum.
Lýsing á hóptímum
Jóga & öndun
Marjolijn er Hatha yoga kennari og leggur áherslu á í gegnum jóga að auka hreyfanleika í liðum, styrkja vöðva sem styðja við liðina, róa taugakerfið í gegnum hægar hreyfingar og öndun og róa taugakerfið. Jóga hefur marga kosti og hentar vel fyrir flesta sem eiga við verkjavanda að stríða.
Umsjón: Marjolijn Van Dijk, sjúkraþjálfari
Bakheilsa
Bakheilsutímarnir og eru hugsaðir fyrir alla þá sem glíma við vandamál í baki og mjöðmum eða hafa farið í aðgerðir á því svæði. Það verður farið í gegnum stutta fræðslu og síðan unnið með æfingar, líkamsstöðu og aðferðir til að beita sér í daglegu lífi.
Umsjón: Kristín Rós og Marjolijn, sjúkraþjálfarar
Hreyfiflæði / Hreyfiflæði +
Klassískt hreyfiflæði þar sem við liðkum og styrkjum bandvefskerfi líkamans með fjölbreyttum hreyfiflæðiæfingum og endum á dásamlegri slökun. Í hreyfiflæði + er unnið með hreyfiflæði/Fysioflow auk sérvalinna styrktaræfinga.
Umsjón: Eydís Valgarðsdóttir, sjúkraþjálfari
Styrkur og jafnvægi
Fjölbreytt styrktarþjálfun þar sem unnið er með helstu vöðvahópa líkamans í formi stöðvaþjálfunar í bland við ýmsar útgáfur af jafnvægisæfingum. Hver tími hefst á léttri upphitun og sérhæfðum æfingum fyrir djúpvöðvakerfi líkamans sem allir hafa gagn af.
Umsjón: Þóra Guðný Baldursdóttir, sjúkraþjálfari
Konutímar
Mjúk, styrkjandi og liðkandi leikfimi fyrir 60+ ára konur með stoðkerfis vanda og vilja reglulega þjálfun. Í boði að æfa 1-2 sinnum í viku.
Umsjón: Þóra Guðný Baldursdóttir, sjúkraþjálfari
Styrkur & Teygjur
Styrktarþjálfun með teygjum og léttum handlóðum með áherslu á að styrkja kvið, bak og mjaðmir sem er þessi sterka miðja eða “kjarni” sem við vinnum allar hreyfingar út frá.
Umsjón: Olga Unnarsdóttir, sjúkraþjálfari
Endurhæfing 25 – 35 ára
Konur á sama aldursbili á endurhæfingarlífeyrir með almennan verkjavanda og eiga það allar sameiginlegt að vilja koma hreyfingu inn í daglega rútínu og upplifa vellíðan í gegnum hreyfingu. Lokaður hópur en hægt að senda fyrirspurn um pláss á umsjónar þjálfara.
Umsjón: Olga Unnarsdóttir, sjúkraþjálfari
Boltar & rúllur
Líkamsvitund og sjálfsmeðferð á mjúkum rúllum og boltum. Rólegir tímar þar sem losað er um spennu í bandvefskerfi líkamans til að ná fram slökun og ró í taugakerfið. Í boði að mæta 1- 2 sinnum í viku.
Umsjón: Eydís Valgarðsdóttir, sjúkraþjálfari
ME-hópur
Sérstakir tímar fyrir ME/CFS/Long Covid greinda þar sem áhersla er lögð á að slaka á taugakerfinu, losa um spennu í bandvefskerfinu, örva sogæðakerfið og djúpa öndun. Lokaður hópur en hægt að senda fyrirspurn um pláss á umsjónar þjálfara.
Umsjón: Eydís Valgarðsdóttir, sjúkraþjálfari
Sundleikfimi í Glerársundlaug
40 mín. sundleikfimistímar undir handleiðslu sjúkraþjálfara í innilauginni í Glerársundlaug. Hægt að nýta beiðni í sjúkraþjálfun til niðurgreiðslu á þátttöku. Skráning fer fram daginn áður en tíminn er haldinn á facebook – hér.
Umsjón: Eydís Valgarðsdóttir, sjúkraþjálfari
———————————————————–
Námsskeið og fræðsla
.
Slitgigtar námskeið
7 vikna prógram fyrir fólk með einkenni tengt sliti í mjöðm og hné. Fyrstu tveir tímar námskeiðsins eru fræðslu um hvað slitgigt er, einkenni, áhættuþættir og meðferðarprógram. Hvernig er hægt að æfa, hvað má og hvað skal forðast.
Prógramið er alþjóðlega viðurkennd og heitir GLAD frá Danmörku. Sýnt hefur verið fram á að 80% skjólstæðinga hafa haft batandi einkenni eftir 7 vikna námskeið og geta jafnvel frestað aðgerð.
Hver skjólstæðingur fær skoðunartíma og þar er lagt fyrir tvö próf til að mæla árangur. Æfingarnar eru einstaklingsmiðaðar og kennt er alla mánudaga og fimmtudaga kl. 12 – 13. Að loknu þessa 7 vikna námskeiði er þátttakendum boðið að halda áfram í framhaldshóp einu sinni í viku, á miðvikudagsmorgnum.
.
Vefjagigt og langvinnir verkir
Vefjagigtarfræðsla í umsjón Eydísar sjúkraþjálfara mun hefjast þriðjudaginn 11. febrúar – 1.apríl. Námskeiðið er þverfaglegt og fer fram á ZOOM á þriðjudögum kl. 19.30-21.30 í beinni útsendingu en í kjölfarið fylgir upptaka sem hægt er að horfa á eftirá og er opin í nokkrar vikur.
Að námskeiðinu koma læknir, sjúkraþjálfarar, sálfræðingur og iðjuþjálfi. VIRK hefur keypt þetta námskeið fyrir sína skjólstæðinga en án aðkomu VIRK kostar námskeiðið 30.000 kr.
Nánar um fræðslu um vefjagigt og langvinna verki og skráningu hér.